Tær snilld Baugsstjórn Jóhönnu

Baugstjórnin með Kaupþing-Arion banka ætlar núna að passa uppá að Ísland fari í algjöra rúst. Vöruverð kemur til með að vera það dýrasta í heimi á Islandi um ókomin ár, með tilheyrandi verðbólgu. Þetta er hneyksli sem verður að stoppa. Hagar eru ekki búnir að skila ársuppgjöri. Hvernig getur bankinn látið Baugsfeðga fá Haga án þess að sjá hvernig reksturinn gengur? Hvað er bankinn að hugsa, þeir eiga 100% í Högum og Jón Ásgeir er látinn "finna" fjárfesta. Jón Ásgeir er í skattrannsókn og getur ekki setið í stjórum fyrirtækja.....já það er traustvekjandi, eða hitt þó og heldur. Það eina sem www.Þjóðarhagur.is var  að biðja um, var að hafa opið og gegnsætt ferli við sölu eigna bankans. Bankinn er þegar búinn að brjóta sínar eigin verklagsreglur,... þessir snillingar. Einokun í höndum Útlendinga....hljómar kunnuglega! Þetta er pólitísk spilling af verstu sort........og opnar fyrir alla hina vitringana, sem tóku fyrirtæki á hausinn í hruninu, t.d. Björgólfsfeðga að kaupa Nýja Landsbankan.....allavega samkvæmt þessum brilliant verklagsreglum. Adjö


mbl.is Hlutur í Högum ekki til sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Þeir ætla sér að halda vöruverði háu til að fá eitthvað til baka af þessum peningum. Hvar annars staðar en hjá okkur, mér og þér fengju þeir sitt til baka?

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 23.11.2009 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband